top of page
Rútur í KEF.HEIC

Farþegaflutningar

ProTrip býður upp á rútur fyrir öll tilefni þar sem þeirra gæti þarfnast. Við erum staðsett í Hafnarfirði og venjan sú að ferðir hefjist á suð-vesturhorninu, þó það geti verið breytilegt. ProTrip getur tekið þig og hópinn þinn hvert á land sem er

9C3D3D83-C8E4-4EF0-9B8C-B3305FC36918.heic

Fagmennska og þjónusta

Starfsfólk ProTrip gerir allt í sínu valdi til að þjónustan sé eins og best er á kosið. Allt frá fyrstu samskiptum, upphafi ferðar og að dyrum þar sem við skiljum við hópinn þinn.

IMG_3413.png

Flotinn okkar

Við bjóðum upp á tvær stærðir af hópbifreiðum. Sæti fyrir 49 farþega og sæti fyrir 57 farþega. Góðir samstarfsaðilar okkar bjóða svo upp á Sprinter sem tekur 19 farþega í sæti.

IMG_2627.png

Dagsferðir og skutl

ProTrip bíður upp á dagsferðir og styttri "skutl" 
Fyrir hópa sem ferðast saman til útlanda getur borgað sig að sameinast í rútu frekar en að hreyfa marga fólksbíla sem þurfa svo gjarnan að greiða stöðugjöld á meðan erlendis er notið. 

Þá bjóðum við einnig upp á styttri skutl eins og á veitingastað og aftur til baka sem dæmi. 

ProTrip Iceland map_edited.jpg

Langferðir

ProTrip getur aðstoðað þig við að stilla upp lengri ferðum þar sem ferðast er fleiri daga um landið. Helgarferð norður í land eða ein nótt á Ísafjörð fyrir íþróttamót sem dæmi. Hafðu samband og við aðstoðum þig við að stilla upp frábærri ferð þar sem vítt er á milli sæta og ljúfur akstur í fyrirrúmi.

ProTrip  2024.png

Starfsmannaferðir

Við höfum ekið fjöldann allan af starfsmannaferðum og allir á sama máli. Þjónustan, svigrúm til breytinga, og aðlögun að mismunandi þörfum ávallt til fyrirmyndar. Það er sjálfsagt mál að sækja í hugmyndabankann hjá okkur hugmyndir að afreyingum og fleira.

2023-015_edited.png

Skemmtiferðir

Gæsanir, steggjanir, afmælisferðir, árshátíðir, jólahlaðborð og margt fleira er eitt af þeim fjölmörgu verkefnum sem við sinnum. Við bjóðum einnig upp á partýhátalara með hljóðnemum þegar þess er óskað.  
ProTrip getur einnig gert hópnum þínum tilboði í ferðir sem innihalda einnig afþreyingar og aðgang að hinum ýmsu samstarfsfélögum.

Þín ánægja er okkar markmið!

Frá okkur eiga allir að ganga glaðir!

Við leggjum okkur fram við að þjónustan sé sem best og viljum tafarlaust heyra af því sem betur má fara svo hægt sé að gera enn betur næst

ProTrip ehf.

Kt. 530123-0490

Vsk.nr. 147428

Vefarastræti 14, 270 Mosfellsbæ

Starfsstöð: Álhella 11, 221 Hafnarfirði

info@protrip.is

​

  • alt.text.label.Facebook
Day tour provider badge

©2023 by Ívar Björn Sandholt for ProTrip. *Updated 2026

bottom of page